„Hún mun alltaf vera með mér“

Adolf Þór Har­alds­son missti stóru ást­ina í lífi sínu aðeins nítján ára gam­all þegar Hannah Jane Large lést á Krýsu­vík­ur­vegi. Hún hafði skrifað rit­gerð um ást þeirra, sem hann segir lýsa hvernig honum líður núna.

„Hún mun alltaf vera með mér“
Sorgin Adolf Þór Har­alds­son segir frá sam­band­inu við Hönnuh Jane Large og sorg­inni eftir að hún lést í bílslysi. Hann seg­ist enn elska hana. Mynd: Golli

„Þetta var bara ekki rétti tím­inn, en við vissum alltaf að við værum að fara að byrja aftur saman,“ segir Adolf Þór Har­alds­son, sem er aldrei kall­aður annað en Dolli, um Hönnuh Jane Large, sem lést langt fyrir aldur fram þegar bíll sem hún var far­þegi í lenti utan vegar á Krýsu­vík­ur­vegi eftir hraðakstur.

Adolf og Hannah urðu kærustupar haustið 2025 eftir að hafa kynnst á Spáni. Þau hættu saman vegna flók­inna aðstæðna í jan­úar eftir að hafa verið saman í tæpt hálft ár. Hannah Jane var stóra ástin í lífi Dolla, sem er nítján ára gam­all fót­bolta­strákur frá Njarðvík. Hannah Jane skrif­aði rit­gerð um ást þeirra fyrir loka­prófin sín í Írlandi og fékk hæstu ein­kunn fyrir. Rit­gerðin nefnd­ist „Ást og missir“.

Þannig var ást þeirra í meinum þegar Hannah Jane lést …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár