Rúm 1.000 tonn af fernum sem Mjólkursamsalan notar eru brennd árlega. Fyrirtækið greiðir um 65 milljónir króna á ári í úrvinnslugjald vegna þeirra. Aðrar fernur sem Íslendingar nota enda einnig í brennslu. MS harmar að endurvinnslumöguleikar þeirra séu ekki nýttir sem skyldi. Á mörgum fernum eru neytendur hvattir til að skola þær og koma þeim í endurvinnslu, en þær eru ekki endurunnar.
Treystu því að ferlarnir væru í lagi
Í skriflegu svari segir Mjólkursamsalan að hún hafi treyst því að ferlar við meðhöndlun fernanna væru í lagi og viðeigandi eftirlit með þeim.
„Mjólkursamsalan harmar að þeir endurvinnsluferlar sem í boði eru fyrir blandaðar drykkjarumbúðir séu ekki nýttir sem skyldi“
„Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Úrvinnslusjóðs er úrvinnslugjaldið ætlað til að standa undir meðhöndlun og endurnýtingu umbúða eftir að þær hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Með greiðslu gjaldsins hefur MS treyst því að þessir ferlar …





















































Athugasemdir