Íris Helga handtekin grunuð um umsáturseinelti í öðru máli

Íris Helga Jón­atans­dóttir bar við minnis­leysi og sagð­ist ekki kann­ast við net­fang í tölvu sinni. Fyrir dómi kom fram að hún hefði nýverið verið hand­tekin vegna gruns um umsát­ursein­elti í óskyldu máli. Hún við­ur­kenndi að hafa rang­lega kært mann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og sent til­hæfu­lausa kvörtun til barna­verndar.

Íris Helga handtekin grunuð um umsáturseinelti í öðru máli
Ákærð Íris Helga bar ítrekað við minnis­leysi um sam­skipti, reikn­inga og sam­fé­lags­miðla­færslur sem hún rakti til álags vegna máls­ins. Hún sætir ákæru fyrir að sitja um níu ein­stak­linga. Mynd: Golli

Fyrsti dag­ur­inn í aðal­með­ferð í máli Írisar Helgu Jón­atans­dóttur, sem er ákærð fyrir umfangs­mikið umsát­ursein­elti gegn níu ein­stak­lingum, ein­kennd­ist af minnis­leysi og óvæntum útskýr­ingum um sam­an­tekna heift gagn­vart henni sjálfri. Hún upp­lýsti sjálf óvænt í lok skýrslu­tök­unnar að hún hefði verið hand­tekin fyrir stuttu og því haldið fram að hún væri að ofsækja náinn fjöl­skyldu­með­lim. Hún útskýrði ekki mála­vexti frekar en virt­ist reið vegna atviks­ins sem hún tengir við ofsóknir lög­reglu gegn sér.

Tengdi tölvu Írisar við netfang eltihrellis

Sak­sókn­ari sýndi í mál­flutn­ingi sínum fram á að sama net­fang og var notað til þess að hrella tvo þolendur hafi sést á ljós­mynd sem var tekin af tölvu Írisar Helgu. Net­fangið sem ætlað er að til­heyri henni var notað til þess að senda pósta á skóla dóttur Sölva Guð­mund­ar­sonar og því haldið fram að þau væru við­riðin fíkni­efni og ofneyslu áfengis auk ann­arra ásak­ana.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu