Frakkar saka Íran um netárás á kæla í hundruðum stórmarkaða

Hundruð stór­mark­aða urðu fyrir netárás sem hækk­aði hita­stig kæla. Margar versl­anir þurftu að henda tölu­verðu magni af mat­vælum. Franski utan­rík­is­ráð­herr­ann Jean-Noel Barrot segir að sendi­herra Írans verði kall­aður á fund og að Frakkar muni beita sér fyrir refsi­að­gerðum í Evrópu.

Frakkar saka Íran um netárás á kæla í hundruðum stórmarkaða
Viðbrögð Jean-Noel Barrot, utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, segir Íran standa að baki netárásum á kæla í frönskum stór­mörk­uðum. Hann segir Frakka beita sér fyrir refsi­að­gerðum á evr­ópskum vett­vangi. Mynd: YASIN AKGUL / AFP

Utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands sagði í dag að Frakkar úti­lok­uðu „ekk­ert“ í við­brögðum við umfangs­mik­illi netárás á kæla í hund­ruðum stór­mark­aða í októ­ber. Frakkar kenna Íran um árás­ina.

Jean-Noel Barrot utan­rík­is­ráð­herra sagði við FranceinfoTV að sendi­herra Írans yrði kall­aður á fund og að Frakkar myndu beita sér fyrir refsi­að­gerðum á evr­ópskum vett­vangi.

„Ég get einnig sagt ykkur að við úti­lokum ekk­ert og munum grípa til allra þeirra ráð­staf­ana – líka þeirra sem við kunnum að birta ekki opin­ber­lega – sem við teljum hóf­legar og nauð­syn­legar til að fæla frá frek­ari árásum,“ bætti hann við.

Hundruð franskra stór­mark­aða urðu fyrir netárás­unum 11. og 12. októ­ber. Við þær hækk­aði hita­stig í kælum versl­an­anna og margar þeirra neydd­ust til að henda öllum birgðum sínum af mat­vælum með skamman geymslu­tíma.

Síðan hefur verið greint frá sam­bæri­legum atvikum í öðrum Evr­ópu­löndum. Þann 2. nóv­em­ber urðu versl­anir í að minnsta kosti níu öðrum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár