Trump lætur „rannsaka glæp“ demókrata

Donald Trump segir dóms­mála­ráðu­neytið eiga að kanna hót­anir um emb­ætt­is­á­kærur eftir að demókratar náðu meiri­hluta í báðum þing­deildum.

Trump lætur „rannsaka glæp“ demókrata
Nýr meiri­hluti Hakeem Jeffries, tals­maður demókrata í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings, á blaða­manna­fundi í Washington 4. nóv­em­ber 2026, eftir að demókratar náðu meiri­hluta á þing­inu. Hann hefur sagt að Pete Hegseth stríðs­mála­ráð­herra verði að hætta, en ekki stutt ákæru á hendur honum. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagð­ist í dag hafa fyr­ir­skipað dóms­mála­ráðu­neyt­inu að rann­saka hót­anir demókrata um að bera fram emb­ætt­is­á­kæru á hendur emb­ætt­is­mönnum í stjórn hans.

Pólitísk staða Trumps hefur gjör­breyst eftir að demókratar náðu meiri­hluta bæði í full­trúa­deild og öld­unga­deild í þing­kosn­ing­unum á þriðju­dag. Hann stendur nú frammi fyrir and­snúnum meiri­hluta í báðum deildum.

Demókratar hafa heitið því að rann­saka Trump og hátt­setta emb­ætt­is­menn í stjórn hans, þar á meðal Todd Blanche dóms­mála­ráð­herra og Pete Hegseth varn­ar­mála­ráð­herra.

„Demókratar ganga um og hóta fjölda fólks,“ skrif­aði Trump á miðil sinn Truth Social.

„Þetta er fjár­kúgun af verstu sort og þeir eiga að sæta ábyrgð,“ sagði hann og hélt því fram að „ekk­ert hefði verið gert sem gæti varðað emb­ætt­is­á­kæru“.

Trump sagð­ist hafa fyr­ir­skipað dóms­mála­ráðu­neyt­inu að „rann­saka þennan glæp“ og sagði að „þessir FJÁRKÚGARAR ættu að fara í fang­elsi“.

Með yfir­ráð yfir nefndum beggja þing­deilda geta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár