Djöflar
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson
Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason
Þýðing: Hlín Agnarsdóttir
Kolsvört og krefjandi. Djöflar setur gæðastuðulinn fyrir komandi leikár.
Hvenær er sambandi lokið? Hvenær er ástin ekki nóg? Er það þegar vondu dagarnir eru fleiri en þeir slæmu? Eða þegar öll von er úti um að góðu dögunum eigi eftir að fjölga í framtíðinni? Um síðustu helgi var Djöflar eftir sænska höfundinn Lars Norén frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Svörin við ofangreindum spurningum eru kannski ekki að finna í sýningunni heldur krefur leikskáldið áhorfendur um að máta sig við óhamingjuna.
Norén er þekktur fyrir myrka sýn sína á mannleg samskipti og sambönd. Djöflar eru hans tilbrigði við leikverk á borð við Hver er hræddur við Virginíu Woolf? eftir Edward Albee og Elskhugan eftir Harold Pinter. Við erum stödd á heimili hjónanna Frank og Katarínu sem eiga í tilfinningalegu og andlegu stríði við hvort annað. Móðir Franks er nýlátin en það er ekki orsök óhamingjunnar heldur frekar hvatinn sem leiðir til lokaorustunnar. Eftir að kvöldplönin falla niður bjóða þau Jennu og Tómasi, …


















































Athugasemdir