Elsku Embla

Elsku Embla

Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá frá­falli Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur. Andlát hennar var harma­fregn fyrir sam­fé­lagið, en fjöl­skyldan sat eftir með sorg­ina. Löngu áður en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orðið ljóst að hún væri orðin alvar­lega veik, en vegna þess hve þögul veik­indin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmæl­is­dag­inn sinn.

Guðrún Katrín Bryn­dís­ar­dóttir og Arnar Guð­munds­son horfðu björtum augum til fram­tíðar, þau voru bæði í mik­il­vægum störfum, að gera upp drauma­húsið og dug­leg að ferð­ast með dæt­urnar, draga þær með á söfn og leik­sýn­ingar. Syst­urnar, Agla og Embla, voru nánar vin­konur, virkar í tóm­stundum og námi. Faðir þeirra sagði sögur og móðir þeirra sló á létta strengi. Á morgn­ana vakti hún þær með heitum kaffi­bolla og mætti þeim með faðm­lagi þegar þær komu á fætur. Um helgar voru bak­aðar pönnu­kökur. „Vá, hvað ég var ham­ingju­söm. Nánast með sam­visku­bit yfir að hafa allt til alls og allt sem ég gat óskað mér,“ skrif­aði Katrín síðar, í dag­bók sem hún hélt eftir frá­fall dóttur sinnar. 

Nemendum beint í kirkjuna 

Vorið 2021 voru þema­dagar í Haga­skóla. Síðustu skóla­dögum ann­ar­innar var að ljúka og nem­endur mættu seinna en vana­lega, fullir til­hlökk­unar fyrir skrúð­göngu niður í bæ. En þegar þeir mættu lá eitt­hvað …

Kjósa
87
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörðun að fækka sjálfs­vígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“

16 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár