Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur lagt til að hann, Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, leiðtogi Kína, fundi í næsta mánuði um stríðið í Úkraínu. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti tæki ekki þátt í viðræðunum. Samkvæmt heimildum The Wall Street Journal vill Pútín með þessu freista þess að ná samkomulagi um lok fjögurra ára stríðs sem yrði Rússum hagstætt.
Tillagan kemur á sama tíma og samskipti Trumps og Pútíns hafa hlýnað, sem hefur valdið áhyggjum meðal Úkraínumanna og bandamanna þeirra í Washington og Evrópu. Bandaríkjaforseti hefur þó ekki samþykkt að taka þátt í slíkum fundi, að sögn háttsetts bandarísks embættismanns.
Rússnesk stjórnvöld hafa lagt til að leiðtogarnir ræði saman samhliða leiðtogafundi APEC, efnahagssamvinnuvettvangs Asíu- og Kyrrahafsríkja, sem fram fer í kínversku tækniborginni Shenzhen 18. og 19. nóvember. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa kínversk stjórnvöld gefið til kynna að þau myndu ekki leggjast gegn fundinum ef Trump samþykkti þátttöku.
Dmitry Peskov, talsmaður …

































Athugasemdir