Grindvíkingar fá að kaupa húsin sín til baka á sama verði og þeir seldu

Fast­eigna­fé­lagið Þórkatla ætlar að hefja sölu fast­eigna í Grinda­vík í byrjun næsta árs. Fyrr­ver­andi eig­endur geta keypt húsin sín til baka á sama verði og ríkið greiddi fyrir þau og fengið allt að þriggja ára frest til að ljúka kaup­unum. Á þeim tíma geta þeir hætt við kaupin og skilað eign­unum.

Hús í Grindavík
Hús í Grinda­vík Þórkatla ætlar að bjóða Grind­vík­ingum að kaupa fast­eignir í bænum á sama verði og félagið greiddi fyrir þær. Mynd: Golli

Fast­eigna­fé­lagið Þórkatla ætlar að bjóða Grind­vík­ingum að kaupa fast­eignir í bænum á sama verði og félagið greiddi fyrir þær eftir að Grinda­vík var rýmd vegna eldsum­brot­anna á Reykja­nesskaga. Þetta kemur fram í nýrri end­ur­kaupa­á­ætlun félags­ins.

Þórkatla var stofnuð af rík­inu til að kaupa upp íbúð­ar­hús­næði í Grinda­vík og hefur alls keypt 961 fast­eign í bænum. Um þrjá­tíu þeirra eru ónýtar eftir jarð­hrær­ingar og eldsum­brot. Félagið situr því á 930 eignum í bænum.

Stefnt er að því að fyrstu kaup­samn­ing­arnir verði und­ir­rit­aðir í byrjun næsta árs. Grind­vík­ingar fá frest til 31. jan­úar 2030 til að greiða fast­eign­irnar að fullu og á þeim tíma geta þeir hætt við kaupin og skilað eign­unum aftur til Þórkötlu.

Fimm prósenta útborgun

Kaup­endur þurfa að greiða að lág­marki fimm pró­sent af kaup­verði við und­ir­ritun samn­ings. Á næsta ári verður þó hægt að skipta útborg­un­inni í tvennt, greiða tvö pró­sent við und­ir­ritun og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár