Fréttamál

Jarðhræringar við Grindavík

Greinar

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.
Ríkið kaupir íbúðarhúsnæði Grindvíkinga á 61 milljarð króna
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Ríkið kaupir íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga á 61 millj­arð króna

Rík­is­stjórnin hefur komið sér saman um frum­varp sem kveður á um að rík­is­sjóður muni bjóð­ast til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði Grind­vík­inga og taka yfir íbúð­ar­lán sem á þeim hvíla. Tilkynnt var á vef stjórn­ar­ráðs­ins að frum­varpið hafi verið sam­þykkt á rík­is­stjórnar fundi í dag og birt í sam­ráðs­gátt. Kostn­aður aðgerð­ar­innar er met­inn á 61 millj­arð króna. Sérstakt félag verður stofnað til að ann­ast fram­kvæmd­ina.
Stjórnvöld voru vöruð við
GreiningJarðhræringar við Grindavík

Stjórn­völd voru vöruð við

Minn­is­blöð sem Heim­ildin hefur fengið afhent sýna að mögu­legt hita­vatns­leysi á Suð­ur­nesjum hefur verið mikið áhyggju­efni mán­uðum saman og að stjórn­völd voru hvött til að hefja und­ir­bún­ings­vinnu til að takast á við verstu sviðs­myndir. Við­brögðin hafa verið af skornum skammti og í gær hit­uðu tug þús­undir íbúa á Suð­ur­nesjum upp hús sín með stökum raf­magns­ofnum eða hita­blás­urum.

Mest lesið undanfarið ár