Fagnar olíufundi fyrir loftslagsfund

Gest­gjafi COP31 um fram­tíð lofts­lags­mála mætir á ráð­stefn­una, þar sem olía og kol eru lítið til umræðu.

Gestgjafi COP31
Gest­gjafi COP31 Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seti er vænt­an­legur á COP31 í Antalya. Hann segir nýfundnar olíu­lindir í Gabar-fjall­lendi „góð tíð­indi“. Mynd: Adem ALTAN / AFP

Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seti heldur í dag til Antalya, þar sem lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP31, fer fram. Hann hefur fagnað því að nýjar olíu­lindir hafi fund­ist.

Erdogan er vænt­an­legur til borg­ar­innar við Mið­jarð­ar­hafið dag­inn áður en þjóð­höfð­ingjar og rík­is­stjórn­ar­leið­togar hefja tveggja daga ávarps­dag­skrá á árlegri ráð­stefn­unni. Þar er þrýst á ríki að gera meira til að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingum.

Í gær fagn­aði Erdogan því að tvær olíu­lindir hefðu fund­ist í Gabar-fjall­lend­inu. Þær gætu geymt 135 millj­ónir tunna af hrá­olíu og kall­aði hann fund­inn „góð tíð­indi“.

Olíu­vinnsla á suð­aust­ur­hluta lands­ins mun fara yfir 100.000 tunnur á dag á síð­ari helm­ingi árs­ins 2027, sagði hann á X.

Úrgangur í Tyrklandi
Úrgangur í Tyrk­landiPlast­úr­gangur á lóð end­ur­vinnslu­stöðvar í Adana í suð­ur­hluta Tyrk­lands mynd­aður í lok októ­ber. Umhverf­is­sam­tök hafa gagn­rýnt útflutn­ing plast­úr­gangs frá Evr­ópu­sam­band­inu til lands­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár