Aðili

Recep Tayyip Erdoğan

Greinar

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til lokauppgjörs í Sýrlandi
GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­upp­gjörs í Sýrlandi

Banda­ríkja­stjórn sveik sína nán­ustu banda­menn gegn ISIS á dög­unum með því að gefa Tyrkjum skot­leyfi á varn­ar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrk­lands­for­seti er hins vegar kom­inn í stór­kost­leg vand­ræði og inn­rás hans er í upp­námi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu banda­lag við Rússa og sýr­lenska stjórn­ar­her­inn. Um leið og Banda­ríkja­her er að hverfa á brott frá land­inu virð­ist allt stefna í loka­upp­gjör í borg­ara­stríð­inu sem hefur geisað í átta ár.
Gagnrýni á innrás Tyrkja jafngildir hryðjuverkum
Greining

Gagnrýni á inn­rás Tyrkja jafn­gildir hryðju­verkum

Banda­lags­ríki Íslend­inga í Nató hótar að láta 3,6 millj­ónir hæl­is­leit­enda „flæða“ yfir Evrópu ef árás Tyrkja á Sýrland verður skil­greind sem inn­rás. Stjórn­ar­her Sýrlands, studdur af Írönum og Rússum, stefnir í átt að tyrk­neskum her­sveitum. Gagnrýni á inn­rás­ina hefur verið gerð refsi­verð og tyrk­neska lands­liðið í knatt­spyrnu tekur afstöðu með inn­rásinni.
Afturför Tyrklands
ÚttektValdaránið í Tyrklandi

Afturför Tyrk­lands

Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seti og fylg­is­menn hans eru að umturna Tyrk­landi fyrir opnum tjöldum. Þúsundir dóm­ara og opin­berra starfs­manna hafa verið reknir úr störfum sínum sak­aðir um óljós tengsl við and­stæð­inga for­set­ans. Þá hafa hátt í þús­und blaða­menn verið sóttir til saka fyrir skrif sín. For­set­inn íhugar að taka upp dauða­refs­ingar að nýju. Íbúar Istanbúl reyna að fóta sig í ólíkum heimi nú þegar ár er liðið frá valda­ránstil­raun­inni. Jón Bjarki Magn­ús­son heim­sótti borg­ina í byrjun júní.

Mest lesið undanfarið ár