Konurnar hverfa frá Trump

Af átta konum í æðstu emb­ættum stjórnar Donalds Trump í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins eru aðeins þrjár eftir átján mán­uðum síðar.

Konurnar hverfa frá Trump
Farnar Kristi Noem og Pam Bondi sjást með Donald Trump í Hvíta hús­inu í sept­em­ber 2025. Báðar hafa síðan látið af emb­ætti í stjórn hans. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Skyndi­legt brott­hvarf Susie Wiles úr starfi starfs­manna­stjóra Hvíta húss­ins, einum degi eftir að repúblikanar biðu afhroð í mið­kjör­tíma­bils­kosn­ing­unum, er við­bót á vax­andi lista kvenna sem hafa látið af æðstu emb­ættum í stjórn Donalds Trump for­seta frá ára­mótum.

Í upp­hafi ann­ars kjör­tíma­bils síns gort­aði þessi átt­ræði repúblikani af því að hann væri „ánægður með að geta sagt að fleiri konur sitji í rík­is­stjórn okkar en nokkru sinni fyrr í stjórn repúblikana­for­seta í sögu lands­ins“.

Þá gegndu átta konur æðstu emb­ættum, af rúm­lega 20 slíkum stöðum.

Átján mán­uðum síðar eru aðeins þrjár eftir: Brooke Rollins land­bún­að­ar­ráð­herra, Linda McMahon mennta­mála­ráð­herra og Kelly Loeffler, sem fer fyrir banda­rísku smá­fyr­ir­tækja­stofn­un­inni.

Helmingi kvenn­anna var vikið úr starfi á þriggja mán­aða tíma­bili í vor.

Fyrst fór Kristi Noem heima­varna­ráð­herra, sem hafði orðið and­lit ofbeld­is­fullrar her­ferðar Trumps gegn inn­flytj­endum.

Á eftir henni fóru Pam Bondi, æðsti sak­sókn­ari alrík­is­stjórnar Trumps, Lori Chavez-DeRemer atvinnu­mála­ráð­herra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár