Bandaríkin, Kína og Evrópa fara ólíkar leiðir í regluverki um gervigreind

Kröfur um aukið aðhald gagn­vart öfl­ug­ustu gervi­greind­ar­kerf­unum verða sífellt hávær­ari.

Leiðtogafundur
Leið­toga­fundur Banda­ríkja­for­seti tók á móti Xi Jinping. for­seta Kína, í lok sept­em­ber. Mynd: AFP

Banda­ríkin leggja áherslu á hraða þróun gervi­greindar og frjálsar skuld­bind­ingar tækni­fyr­ir­tækja á meðan Kína hefur komið á víð­tæku eft­ir­liti með tækn­inni. Evr­ópu­sam­bandið hefur hins vegar sett heild­stæða lög­gjöf um gervi­greind. Um allan heim verða kröfur um aukið aðhald gagn­vart öfl­ug­ustu gervi­greind­ar­kerf­unum sífellt hávær­ari.

Banda­ríkin, Kína og Evr­ópu­sam­bandið hafa valið ólíkar leiðir til að setja reglur um gervi­greind á sama tíma og kröfur um aukið eft­ir­lit með öfl­ug­ustu kerf­unum fara vax­andi um allan heim.

Bandaríkin: Áhersla á frelsi 

Nú þegar nær tvö ár eru liðin af öðru kjör­tíma­bili Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta hefur stefna hans í mál­efnum gervi­greindar nær alfarið byggst á frjálsum skuld­bind­ingum fyr­ir­tækja og for­seta­til­skip­unum sem ætlað er að við­halda örri upp­bygg­ingu grein­ar­innar, sem hefur verið mik­il­vægur drif­kraftur banda­rísks efna­hags­lífs.

Á fyrsta degi sínum eftir end­ur­kom­una í Hvíta húsið felldi Trump úr gildi for­seta­til­skipun Joes Bidens frá árinu 2023 sem skikk­aði þró­un­ar­að­ila öfl­ug­ustu gervi­greind­ar­kerf­anna til að …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Eitt er víst að kerfin ögra hvert öðru sem gerir ómögulegt að búa til höft sem sætta, svolítið svipað vopnakapphlaupinu, hver getur útrýmt hvrjum oftar.
    0
  • Greg Hill skrifaði
    Þetta er vítahringur, hvort sem er í Bandaríkjunum, Kína eða Evrópu, og óháð því hvers konar aðgerðum er gripið til, þá er gervigreind hið orðtaklega ouroboros eða „snákur sem étur sinn eigin hala“.
    1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Áhrifin á fyrirtæki eru mjög ólík eftir því hvar þau starfa eða selja:
    Bandaríkin — lítið eftirlit, meira frelsi
    • Fyrirtæki (OpenAI, Anthropic, Google, Meta o.fl.) geta þróað og gefið út gervigreindarkerfi hratt með lágmarks lagalegum kröfum.
    • Kostnaður við regluverk er lágur og nýsköpun er hraðari.
    • Gallinn: Óvissa til lengri tíma. Ef pólitíkin breytist (eða ef alvarlegt atvik verður) geta reglur komið skyndilega og með miklum þrýstingi.
    • Bandarísk fyrirtæki hafa því forskot í hraða, en minni fyrirsjáanleika.
    Kína — sterkt ríkislegt eftirlit
    • Fyrirtæki verða að fylgja ströngum reglum um innihald, gagnavinnslu, öryggi og samræmi við stefnu ríkisins.
    • Þetta eykur kostnað og takmarkar hvað má gera (sérstaklega varðandi frjálst innihald og gagnsæi).
    • Á móti kemur meiri fyrirsjáanleiki fyrir þau fyrirtæki sem eru í takt við stjórnvöld — þau fá oft stuðning og aðgang að markaði.
    • Erfiðara fyrir erlend fyrirtæki að starfa þar vegna gagnakröfu og eftirlits.
    Evrópusambandið — heildstæð löggjöf (AI Act)
    • Fyrirtæki þurfa að flokka kerfi sín eftir áhættu, gera áhættumat, tryggja gagnsæi og fylgja skýrum reglum.
    • Hár kostnaður við regluvörslu (compliance), sérstaklega fyrir hááhættukerfi (heilbrigðisþjónusta, lánveitingar, löggæsla o.fl.).
    • Brot geta leitt til hára sekta (allt að 7% af veltu).
    • Kosturinn: Skýrari leikreglur og „Brussels-áhrifin“ — margir alþjóðlegir aðilar aðlaga kerfi sín að ESB-reglum til að geta selt inn á evrópska markaðinn.
    • Minni fyrirtæki eiga erfiðara með að standa undir kostnaðinum en risarnir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár