Danmörk hefur lengi verið í fremstu röð í minkarækt í heiminum en mun nú leggja greinina niður til frambúðar. Danska landbúnaðarráðuneytið tilkynnti þetta í dag.
„Danmörk mun ekki sækja um sérstaka undanþágu til að dönsk minkarækt geti haldið áfram þegar bann Evrópusambandsins við minkarækt tekur gildi í ágúst á næsta ári,“ sagði ráðuneytið í yfirlýsingu.
Í nóvember 2020 fyrirskipaði ríkisstjórn Danmerkur að um 15 milljónum minka í landinu skyldi lógað. Rannsóknir höfðu bent til þess að afbrigði veirunnar sem fannst í sumum dýranna gæti dregið úr virkni framtíðarbóluefna gegn Covid-19.
Fjöldalógunin varð þó fljótt pólitískt áfall fyrir ríkisstjórnina þegar síðar kom í ljós að engin lagaheimild var til að knýja bændur til að lóga dýrunum.
Í kjölfarið var öll ræktun minka bönnuð árin 2021 og 2022.
Banninu við minkarækt var aflétt 1. janúar 2023 en greinin tók aðeins lítillega við sér. Í ágúst …


















































Athugasemdir