Danir loka varanlega á alla minkarækt

Danska land­bún­að­ar­ráðu­neytið til­kynnir um enda­lok minka­ræktar.

Minkarækt
Minka­rækt Myndin sýnir minka í búri í Kína. Mynd: GREG BAKER / AFP

Danmörk hefur lengi verið í fremstu röð í minka­rækt í heim­inum en mun nú leggja grein­ina niður til fram­búðar. Danska land­bún­að­ar­ráðu­neytið til­kynnti þetta í dag.

„Danmörk mun ekki sækja um sér­staka und­an­þágu til að dönsk minka­rækt geti haldið áfram þegar bann Evr­ópu­sam­bands­ins við minka­rækt tekur gildi í ágúst á næsta ári,“ sagði ráðu­neytið í yfir­lýs­ingu.

Í nóv­em­ber 2020 fyr­ir­skip­aði rík­is­stjórn Dan­merkur að um 15 millj­ónum minka í land­inu skyldi lógað. Rann­sóknir höfðu bent til þess að afbrigði veirunnar sem fannst í sumum dýr­anna gæti dregið úr virkni fram­tíð­ar­bólu­efna gegn Covid-19.

Fjöldalóg­unin varð þó fljótt póli­tískt áfall fyrir rík­is­stjórn­ina þegar síðar kom í ljós að engin laga­heim­ild var til að knýja bændur til að lóga dýr­unum.

Í kjöl­farið var öll ræktun minka bönnuð árin 2021 og 2022.

Banninu við minka­rækt var aflétt 1. jan­úar 2023 en greinin tók aðeins lít­il­lega við sér. Í ágúst 2026 …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Flott að sé lokað á minkarækt, þó ég hafi litla samúð með minkunum. Eina dýrategundin fyrir ytan manninn, sem ég veit um, sem drepur sér til ánægju, ekki bara til matar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár