Vopnaðir Palestínumenn særðu fimm Ísraela í árás í dag. Árásarmennirnir féllu síðan í langvarandi skotbardaga við hermenn. Í kjölfarið fyrirskipaði Benjamin Netanjahú forsætisráðherra lokun á hernumda Vesturbakkanum, fáeinum dögum fyrir kosningar í Ísrael.
Netanjahú, sem á í harðri baráttu um endurkjör í kosningunum á þriðjudag, sagði ísraelska hermenn hafa komið í veg fyrir árás sem hefði getað orðið stórfelld. Árásarmennirnir tveir hefðu að sögn verið með mikið magn skotfæra í bifreið sinni.
Blaðamaður AFP, sem varð vitni að skotbardaganum, sá tvo vopnaða Palestínumenn skiptast á skotum við ísraelska hermenn við Farsh al-Hawa-eftirlitsstöðina nærri palestínsku borginni Hebron. Mennirnir voru með skammbyssu og sjálfvirkan riffil.
Ísraelskir hermenn skutu árásarmennina að lokum til bana. Blaðamaður AFP sá lík þeirra liggja á jörðinni við bensínstöð á meðan hermenn gengu um allt í kring.
Ísraelsher sagði hermenn hafa hraðað sér að Judea Junction-svæðinu eftir skotárásina snemma í morgun og …


















































Athugasemdir