Mærður höfundur hankaður á gervigreind

Nýstirni í skáld­sagna­heim­inum hefur orðið fyrir aflýs­ingu eftir að gervi­greind greind­ist í margróm­uðu verki hans. Sjálfur seg­ist hann að gervi­greind hafi ekki verið til þegar hann lauk fyrsta upp­kasti.

Thelyson Orelien
Thelyson Orelien Útgef­andi Orelien hefur slitið sam­starfi við hann eftir að grein­ing á drögum að skáld­sögu hans leiddi í ljós ummerki um gervi­greind­ar­merk­ingar. Mynd: JOEL SAGET / AFP

Útgef­andi hins vin­sæla haí­tíska-kanadíska rit­höf­undar Thelyson Orelien sagði í dag að stað­fest hefði verið að hann not­aði gervi­greind við skrif skáld­sög­unnar „It Was Either That or Die“.

Orelien hefur neitað því að hafa notað gervi­greind við skrif bók­ar­innar, sem vakti mikla athygli og mark­aði tíma­mót á ferli hans. Í síð­ustu viku sagð­ist kanadíska útgáfu­fyr­ir­tækið Boreal standa með hinum 38 ára rit­höf­undi.

Í dag greindi Boreal hins vegar frá því að fyr­ir­tækið hefði rann­sakað ásak­an­irnar frekar.

„Nýjar upp­lýs­ingar, sem hafa verið stað­festar und­an­farna daga, benda til þess að gervi­greind hafi verið notuð við skrif“ skáld­sög­unnar, sagði í yfir­lýs­ingu Boreal.

Útgef­and­inn til­kynnti að hann hefði „slitið fag­legu sam­starfi“ við Orelien.

Boreal sagð­ist ekki vita hversu mikið gervi­greind hefði verið notuð við skrifin „og lík­lega fáum við aldrei end­an­legt svar“.

Útgef­and­inn sagð­ist hafa aflað allra vinnu­út­gáfa skáld­sög­unnar og fengið utan­að­kom­andi aðila til að greina drögin.

…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár