Tjón För eftir utan­vega­akstur á Kili. Mynd: Golli

Lögreglan fái heimild til að gera ökutæki tjónvalda upptæk

Nýtt frum­varp umhverf­is­ráð­herra leyfir að þeir sem valda skemmdum með utan­vega­akstri verði knúnir til að greiða fyrir lag­fær­ingu á skað­anum.

Lög­reglan fær laga­heim­ild til að gera öku­tæki þeirra sem stunda utan­vega­akstur upp­tæk án dóms­heim­ildar, sam­kvæmt nýju frum­varpi Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, umhverfis-, orku- og auð­linda­ráð­herra, sem nú er til sam­ráðs í gátt stjórn­valda.

Frum­varp­inu, sem er breyt­ing á nátt­úru­vernd­ar­lögum, fylgir einnig laga­breyt­ing sem setur sam­ræmdar reglur um að land­taka far­þega af skemmti­ferða­skipum á frið­lýstum svæðum verði háð leyfi Nátt­úru­vernd­ar­stofn­unar.

Frum­varpið felur auk þess í sér ein­földun og „bætt fyr­ir­komu­lag“ fyrir „upp­bygg­ingu inn­viða til verndar nátt­úru og menn­ing­ar­sögu­legum minjum“. Reglu­verk verði ein­faldað og „stuðlað að mark­viss­ari upp­bygg­ingu og við­haldi inn­viða á ferða­manna­stöðum í umsjón rík­is­að­ila“.

Veig­ar­mesti hluti frum­varps­ins er þó nýjar heim­ildir til vald­beit­ingar gegn tjón­völdum í utan­vega­akstri.

„Ólög­mætur utan­vega­akstur er óþol­andi og á ekki að líð­ast,“ er haft eftir Jóhanni Páli á vef ráðu­neytis hans. „Þess vegna þurfa stjórn­völd að hafa raun­hæf úrræði til þess að taka fastar á skuss­unum og senda þeim reikn­ing­inn vegna tjóns­ins sem þeir valda. Og þegar öku­menn hlýða ekki fyr­ir­mælum verður lög­regla að geta hald­lagt öku­tæki strax og komið þannig í veg fyrir frek­ari brot. Um þetta snú­ast laga­breyt­ing­arnar.“

Breyt­ingin í frum­varp­inu felur einnig í sér að unnt verði að knýja tjón­valda til þess að greiða fyrir kostn­að­inn af utan­vega­akstri þeirra, eftir að Nátt­úru­vernd­ar­stofnun hefur ann­ast nauð­syn­legar úrbætur: 

Frumvarp um utan­vega­aksturJóhann Páll Jóhanns­son leggur til að þeir sem valda spjöllum með utan­vega­akstri greiði kostnað við mat á tjón­inu og nauð­syn­legar úrbætur.

„Sá sem spjöll­unum veldur skal end­ur­greiða stofn­un­inni nauð­syn­legan og sann­gjarnan kostnað við mat á spjöll­unum og fram­kvæmd úrbóta, þar á meðal við að afmá jarð­rask, lag­færa gróð­ur­skemmdir og draga að öðru leyti úr áhrifum brots­ins,“ segir í nýrri grein nátt­úru­vernd­ar­laga, sam­kvæmt frum­varp­inu.

„Við ákvörðun úrbóta og kostn­aðar skal taka mið af eðli og umfangi spjall­anna, þeim árangri sem ætla má að úrbæt­urnar skili og áætl­uðum eða raun­veru­legum kostn­aði við þær. Byggist ákvörðun um greiðslu á áætl­uðum kostn­aði skal end­an­legt upp­gjör fara fram þegar raun­veru­legur kostn­aður liggur fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár