Tveir af hverjum þremur telja aðhald Seðlabankans of mikið

Í könnun Seðla­bank­ans vænta mark­aðs­að­ilar hrað­ari vaxta­lækk­ana og minni verð­bólgu eftir eitt og tvö ár en þeir gerðu í ágúst. Verð­bólga er enn yfir mark­miði Seðla­bank­ans, en mark­aðs­að­ilar búast við að hún hjaðni og vextir lækki á næstu tveimur árum.

Seðlabankinn
Seðla­bank­inn Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Í könnun bank­ans telja 65 pró­sent mark­aðs­að­ila pen­inga­stefn­una of stranga. Mynd: Golli

Tveir af hverjum þremur mark­aðs­að­ilum telja pen­inga­stefnu Seðla­banka Íslands of stranga. Hlut­fallið hefur hækkað úr 50 pró­sentum í ágúst í 65 pró­sent sam­kvæmt nýrri könnun bank­ans. Á sama tíma hefur þeim sem telja aðhaldið of lítið fækkað veru­lega. Aðeins einn svar­andi af 31 er þeirrar skoð­unar, en í ágúst taldi þriðj­ungur mark­aðs­að­ila aðhaldið of lítið.

Breyt­ingin er einnig áber­andi meðal þeirra sem telja pen­inga­stefn­una allt of stranga. Þeir eru nú rúmur fjórð­ungur svar­enda, sam­an­borið við 12,5 pró­sent í ágúst. Um þriðj­ungur telur aðhaldið hæfi­legt, en það hlut­fall hefur nær tvö­fald­ast milli kann­ana.

65%
Svo stórt hlut­fall mark­aðs­að­ila telur pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans of stranga, sam­an­borið við 50 pró­sent í ágúst. Alls svar­aði 31 aðili könn­un­inni.

Seðla­bank­inn kann­aði vænt­ingar mark­aðs­að­ila dag­ana 2. til 4. nóv­em­ber. Alls svar­aði 31 af 37 aðilum sem leitað var til. Meðal þátt­tak­enda voru bankar, líf­eyr­is­sjóðir, fjár­fest­ing­ar­sjóðir og eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki.

Seðla­bank­inn fram­kvæmir svona könnun fjórum sinnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár