Íslenskt plast fannst í Tyrklandi

The New York Times greinir frá því að íslenskt plast hafi fund­ist á ströndum Tyrk­lands. Úrvinnslu­sjóður neitar að afhenda gögn vegna útflutn­ings á íslensku plasti.

Plastúrgangur í Adana
Plast­úr­gangur í Adana Plast­úr­gangur við end­ur­vinnslu­stöð í Adana í Tyrk­landi. The New York Times greinir frá því að íslenskt plast hafi fund­ist á ströndum Tyrk­lands. Mynd: YASIN AKGUL / AFP

Íslenskur plast­úr­gangur hefur fund­ist á ströndum Tyrk­lands, að því er The New York Times greinir frá. Blaðið segir að rekja megi úrgang­inn til borg­ar­innar Adana. Þar starfa um 60 pró­sent þeirra fyr­ir­tækja í Tyrk­landi sem taka við plasti frá Evrópu til end­ur­vinnslu.

Sandra B. Jóhanns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs, stað­festir í skrif­legu svari til Heim­ilda­irnnar að íslenskt plast sé flutt til Tyrk­lands til end­ur­vinnslu. Sjóð­ur­inn neitar hins vegar að afhenda rakn­ing­ar­skýrslur sem sýna fram á hvert íslenskt plast er sent nákvæm­lega.

Útflutn­ingur á plast­úr­gangi frá Evrópu til Tyrk­lands hefur auk­ist mikið und­an­farin ár, einkum eftir að Kína lok­aði nán­ast fyrir allan inn­flutn­ing á plast­úr­gangi frá Evrópu árið 2018. Evrópsk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki hafa því sent mikið magn plasts til Tyrk­lands til end­ur­vinnslu.

Rann­sóknir erlendra fjöl­miðla hafa dregið fram þau umhverf­is­vanda­mál sem þessu fylgja. Lítið eft­ir­lit er talið helsta vanda­málið. Tyrknesk end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki hafa verið staðin að því að losa sig ólög­lega við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár