Fjölmiðlanefnd svarar ráðherra og segir lögin skýr um skyldur hlaðvarpara

Fjöl­miðla­nefnd sendi um mán­að­ar­mótin bréf til Loga Ein­ars­sonar ráð­herra vegna ummæla hans í opin­berri umræðu. Nefndin hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir að krefj­ast skrán­ingar ein­stakra hlað­varpa og fyrir að sekta stjórn­endur þeirra.

Ágreiningur
Ágrein­ingur Logi Ein­ars­son hefur lýst efa­semdum um núver­andi fyr­ir­komu­lag skrán­ingar hlað­varpa. Fjöl­miðla­nefnd segir fram­kvæmd sína í sam­ræmi við lög. Mynd: Golli

Fjöl­miðla­nefnd hefur sent Loga Ein­ars­syni, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, bréf þar sem hún ítrekar að kröfur hennar um skrán­ingu hlað­varpa séu í fullu sam­ræmi við lög. Bréfið er dag­sett 28. októ­ber en var birt á vef nefnd­ar­innar í gær.

Bréfa­send­ingin kemur í kjöl­far gagn­rýni á fram­kvæmd nefnd­ar­innar, meðal ann­ars frá stjórn­endum vin­sælla hlað­varpa, en líka að því er virð­ist ummæla Loga sjálfs. Hann hefur lýst efa­semdum um núver­andi fyr­ir­komu­lag og boðað end­ur­skoðun fjöl­miðla­laga.

Áform eru um að leggja fram frum­varp til breyt­inga á fjöl­miðla­lögum í mars á næsta ári.

Í bréf­inu segir nefndin að lögin séu skýr um að hlað­vörp geti talist fjöl­miðlar og falli þá undir skrán­ing­ar­skyldu. Það ráð­ist af eðli starf­sem­innar hvort ein­stök hlað­vörp upp­fylli skil­yrði lag­anna, en ekki því hvernig efn­inu sé miðlað. Nefndin vísar jafn­framt til þess að íslenskir dóm­stólar hafi í tvígang stað­fest þá túlkun að hlað­vörp geti fallið undir fjöl­miðla­lög.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár