Fundur Trumps, Pútíns og Xi vekur áhyggjur af uppskiptingu heimsins

Mögu­legur leið­toga­fundur stór­veld­anna í Shenzhen vekur áhyggjur af því að Úkraína og Evrópa verði snið­gengnar, en sér­fræð­ingar telja ólík­legt að við­ræð­urnar skili miklum árangri.

Áform um leiðtogafund stórvelda
Áform um leið­toga­fund stór­velda Xi Jinping og Donald Trump í Washington í sept­em­ber 2026. Rætt er um mögu­legan fund þeirra með Vladimír Pútín í Shenzhen í nóv­em­ber. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Mögu­legur leið­toga­fundur Kína, Banda­ríkj­anna og Rúss­lands hefur vakið ótta við að ný Jalta­ráð­stefna sé í upp­sigl­ingu, þar sem þrír valda­miklir menn skipti heim­inum á milli sín án þess að taka mikið til­lit til Úkraínu, Evrópu, Taívans eða ann­arra.

En fyrir utan sögu­lega ljós­mynd af leið­tog­unum muni fundur Xi Jinping, Donald Trump og Vla­dimírs Pútíns for­seta á leið­toga­fundi APEC í Shenzhen 18.–19. nóv­em­ber lík­lega skila litlu, að mati sér­fræð­inga.

Áhrifasvæði

Þegar Franklin D. Roosevelt, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Winston Churchill, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Jósef Stalín, leið­togi Sov­ét­ríkj­anna, hitt­ust í Jalta í febr­úar 1945 lögðu þeir lín­urnar fyrir skipan mála eftir síð­ari heims­styrj­öld og ný landa­mæri í Evrópu.

Fund­ur­inn í Jalta, sem þá til­heyrði Sov­ét­ríkj­unum en er nú á svæði Úkraínu sem Rússland inn­lim­aði árið 2014, lagði grunn­inn að yfir­ráðum Sov­ét­ríkj­anna í Austur-Evrópu og kalda stríð­inu.

Leiðtogarnir þrír
Leið­tog­arnir þrírWinston Churchill, Franklin D. Roosevelt og Jósef Stalín í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár