„Heimurinn að verða skrítnari“

Breski rit­höf­und­ur­inn M. John Harrison hlaut Booker-verð­launin fyrir skáld­sögu um lífið eftir ham­farir.

Verðlaunabókin
Verð­launa­bókin Breski rit­höf­und­ur­inn M. John Harrison heldur á bók­inni „The End of Everyt­hing“, sem færði honum Booker-verð­launin. Myndin var tekin í Lundúnum dag­inn fyrir verð­launa­af­hend­ing­una. Mynd: JUSTIN TALLIS / AFP

Breski rit­höf­und­ur­inn M. John Harrison, sem hefur eign­ast dyggan aðdá­enda­hóp fyrir skáld­sögur sínar sem fara á milli bók­mennta­greina, sagði í sam­tali við AFP í dag, eftir að hann hlaut Booker-verð­launin, að vest­ræni heim­ur­inn væri „að verða skrítn­ari“.

Harrison hlaut bók­mennta­verð­launin í gær fyrir skáld­sög­una Endalok alls, eða „The End of Everyt­hing“, sem ger­ist eftir heimsendi. Verð­launin gætu opnað honum leið að við­ur­kenn­ingu gagn­rýnenda og vin­sældum meðal almenn­ings, en hingað til hefur hann einkum verið vin­sæll meðal vís­inda­skáld­sagnaunn­enda.

„Samkvæmt við­teknum hug­myndum í útgáfu­heim­inum eru hverf­andi líkur á að maður vinni Booker-verð­launin. Þegar ég heyrði svo nafnið mitt var mér veru­lega brugðið,“ sagði Harrison.

Hann er 81 árs og elstur þeirra sem hafa hlotið verð­launin. Að mati sumra gagn­rýnenda er hann jafn­framt fyrsti verð­launa­haf­inn úr heimi vís­inda­skáld­sagna, þótt hann hafni mörk­unum milli bók­mennta­greina og fari yfir þau í verkum sínum.

Harrison við­ur­kenndi að sig­ur­inn kynni að ein­hverju leyti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár