Bandarískur alríkisdómari hefur hafnað kröfu breska ríkisútvarpsins BBC um frávísun meiðyrðamáls Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Trump krefst margra milljarða dollara í skaðabætur og málið fær að halda áfram fyrir dómstólum eftir niðurstöðu dómarans.
Trump sakar BBC um að hafa klippt heimildarmynd saman með villandi hætti svo að það virtist sem hann hefði hvatt til ofbeldis þegar hann sagði stuðningsmönnum sínum að ganga að þinghúsinu í Bandaríkjunum 6. janúar 2021.
Hann krefst að minnsta kosti fimm milljarða dollara, eða um 612 milljarða króna, vegna meiðyrða og sömu fjárhæðar vegna sérstakrar kröfu sem byggist á lögum Flórída um neytendavernd.
Jeffrey T. Kuntz, dómari við bandarískan alríkisdómstól, hafnaði í gær kröfu BBC um frávísun meiðyrðamálsins en vísaði frá kröfunni sem byggðist á neytendaverndarlögum Flórída.
Talsmaður BBC sagði í stuttri yfirlýsingu að ríkisútvarpið væri „hissa á þessari niðurstöðu“ en virti vald dómstólsins. „Við erum áfram sannfærð um málstað okkar og …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir