Mohsen Rezaei, öryggismálafulltrúi Írans, hefur hótað árásum á bandarískar herstöðvar utan Mið-Austurlanda, meðal annars í Evrópu, verði þær notaðar til árása á íslamska lýðveldið.
„Ef bandarískar flugvélar hefja sig til flugs frá bandarískri herstöð til að gera loftárás á Íran, jafnvel þótt stöðin sé í Evrópu eða á einhverju öðru fjarlægu svæði, munum við gera árás á þær herstöðvar líka,“ sagði Rezaei í viðtali við sjónvarpsstöðina Al Mayadeen, sem hefur aðsetur í Líbanon. Viðtalinu var sjónvarpað í dag.
Hann bætti við að viðbrögð Írans myndu „beinast að fjarlægari herstöðvum Bandaríkjanna“ og hugsanlega „ákveðnum eyjum sem þeir telja að eldflaugar okkar nái ekki til“.
Stríðið í Mið-Austurlöndum hófst 28. febrúar með árásum Bandaríkjanna og Ísraels, þar sem Ali Khamenei erkiklerkur, æðsti leiðtogi Írans, var drepinn.
Íran svaraði með eldflauga- og drónaárásum á ríki víða um svæðið. Vopnaðir hópar í Líbanon, Jemen og Írak, sem njóta stuðnings …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


















































Athugasemdir