Vöknuðu upp við martröð

„Það er búið að taka frá honum öryggi og traust,“ segir móðir tíu ára drengs sem lýsti alvar­legum atvikum þegar maður braust inn á heim­ili fjöl­skyld­unnar í Hafn­ar­firði. For­eldrar drengs­ins segja frá átak­an­legri nótt sem hefur markað líf þeirra síðan, í von um að saga þeirra hjálpi öðrum sem upp­lifa alvar­leg áföll.

Vöknuðu upp við martröð
Martröð For­eldrar drengs­ins héldu að hann hefði fengið martröð þegar hann sagði þeim frá manni inni í her­bergi sínu. Mynd: Golli

„Maður setur barnið sitt í rúmið á kvöldin, kyssir það góða nótt, breiðir betur yfir það og svo fer maður að sofa. Maður hefur trú á því að það sé í örugg­asta rými sem til er,“ segir móðir tíu ára drengs. En aðfara­nótt sunnu­dags­ins 14. sept­em­ber braust maður inn á heim­ili fjöl­skyld­unnar í Hafn­ar­firði, fór inn í her­bergi drengs­ins og framdi þar meint alvar­legt kyn­ferð­is­brot gegn honum. 

„Barnið er í her­berg­inu sínu sem maður er búinn að gera eins nota­legt og hægt er, í rúm­inu sínu og við erum heima í næsta her­bergi. Maður getur ekki ímyndað sér að það sé eitt­hvað sem muni skaða á þessum tíma­punkti. Og ef að það gat gerst þá upp­lifir maður ógn alls staðar,“ segir hún. 

Lög­reglan rann­sakar nú alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi sem mann­inum er gefið að sök að hafa framið gegn drengnum þessa nótt. Maðurinn var settur í þriggja daga gæslu­varð­hald í …

Kjósa
76
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár