Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar

Kannanir benda til þess að demókratar nái meiri­hluta í full­trúa­deild­inni og eigi mögu­leika á sigri í öld­unga­deild­inni. 54 millj­ónir hafa þegar greitt atkvæði. Óánægja með efna­hags­á­standið fer vax­andi og stuðn­ingur við Donald Trump hefur aldrei mælst minni. Úrslitin gætu sett for­set­anum veru­legar póli­tískar skorður.

Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar
Nei Donald Trump seg­ist ætla að beita neit­un­ar­valdi sínu á mál sem demókratar sam­þykkja á þing­inu, nái þeir meiri­hluta í kosn­ing­unum á morgun. Mynd: ANNA MONEYMAKER / Getty Images via AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti valdi Speg­illaug­ina í Washington (Reflecting Pool) sem bak­grunn fyrir síð­ustu til­raun sína til að fylkja repúblikönum til liðs við sig fyrir þing­kosn­ing­arnar á morgun, þriðju­dag. Mis­heppn­aðar end­ur­bætur á þessu þekkta kenni­leiti hafa orðið að tákn­mynd fyrir óreið­una sem ein­kennt hefur annað kjör­tíma­bil hins átt­ræða for­seta. Skoð­ana­kann­anir benda til sig­urs demókrata í kosn­ing­unum.

„Þetta er síð­asti dag­ur­inn fyrir þing­kosn­ing­arnar, þær mik­il­væg­ustu sem ég tel að við höfum upp­lifað á okkar ævi,“ sagði Trump þegar 26 mín­útur voru liðnar af langri og sund­ur­lausri ræðu hans. Þar fjall­aði hann einkum um áform sín um að end­ur­bæta minn­is­varða í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, fremur en verð­bólgu, stríðið við Íran og önnur mál sem skipta kjós­endur máli.

Skoð­ana­kann­anir benda til þess að demókratar séu í góðri stöðu til að ná meiri­hluta í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings og eigi jafn­framt mögu­leika á að ná meiri­hluta í öld­unga­deild­inni. Slík breyt­ing myndi í fyrsta sinn setja Trump …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu