Tölurnar á bak við stórsigur demókrata í bandarísku þingkosningunum

Demókratar náðu meiri­hluta í báðum deildum Banda­ríkja­þings og unnu mik­il­væga sigra í rík­is­stjóra­kosn­ingum víða um land. Met­þátt­taka, gríð­ar­leg fjár­öflun og breytt fylgi meðal ungs fólks og kjós­enda af rómönskum upp­runa settu svip sinn á kosn­ing­arnar. Í nokkrum ríkjum unnu demókratar í fyrsta sinn í ára­tugi.

Tölurnar á bak við stórsigur demókrata í bandarísku þingkosningunum
Kosn­inga­sigur Abdul El-Sayed, fram­bjóð­andi demókrata til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings, og eig­in­kona hans, Sarah Jukaku, fagna sigri á kosn­inga­vöku í Detroit í Michigan. Mynd: JEFF KOWALSKY / AFP

Demókratar náðu meiri­hluta í báðum deildum Banda­ríkja­þings og unnu mik­il­væga sigra í rík­is­stjóra­kosn­ingum víða um land. Met­þátt­taka, gríð­ar­leg fjár­öflun og breytt fylgi meðal ungs fólks og kjós­enda af rómönskum upp­runa settu svip sinn á kosn­ing­arnar. Í nokkrum ríkjum unnu demókratar í fyrsta sinn í ára­tugi.

Demókratar náðu aftur völdum á Banda­ríkja­þingi og unnu rík­is­stjóra­kosn­ingar víða um land í kosn­ing­unum á þriðju­dag. Úrslitin voru afger­andi höfnun kjós­enda á póli­tískri stefnu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta.

Nokkrar lyk­il­tölur varpa ljósi á þennan sögu­lega kosn­inga­sigur.

Metþátttaka í kosningunum

End­an­legar tölur um kjör­sókn lágu ekki fyrir, en sam­kvæmt Election Lab við Flór­ídahá­skóla höfðu Banda­ríkja­menn þegar greitt meira en 61,7 millj­ónir atkvæða áður en kjör­dagur rann upp.

Aldrei áður höfðu jafn margir kosið utan kjör­fundar í þing­kosn­ingum í Banda­ríkj­unum. Þessi mikla þátt­taka hefur án efa komið demókrötum til góða, enda hafa stuðn­ings­menn þeirra jafnan verið lík­legri en kjós­endur repúblik­ana til að …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár