Verðbólgan étur upp rekstrarhagnað Reita

Hagnaður fast­eigna­fé­lags­ins Reita dróst saman um nær 66 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Verð­bætur af skuldum félags­ins juk­ust um rúma þrjá millj­arða króna og vaxta­ber­andi skuldir nema nú tæpum 160 millj­örðum. Stjórn­endur finna fyrir kólnun í hag­kerf­inu.

Verðbólgan étur upp rekstrarhagnað Reita
For­stjór­inn Guðni Aðal­steins­son er for­stjóri Reita. Hann segir að á meðan vaxta­stig hald­ist hátt megi gera ráð fyrir að ytri aðstæður félags­ins verði áfram krefj­andi. Mynd: Reitir

Hagnaður fast­eigna­fé­lags­ins Reita nam tæpum tveimur millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, sam­an­borið við 5,8 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra. Hagn­að­ur­inn dróst því saman um 3,8 millj­arða króna, eða tæp 66 pró­sent, þrátt fyrir að leigu­tekjur félags­ins hafi auk­ist veru­lega.

Meg­in­á­stæðan er auk­inn fjár­magns­kostn­aður. Hrein fjár­magns­gjöld félags­ins námu 12,3 millj­örðum króna, sam­an­borið við 8,3 millj­arða í fyrra. Þar vega þyngst verð­bætur af verð­tryggðum skuldum, sem juk­ust úr 4,8 millj­örðum í 8,1 millj­arð króna.

„Við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hag­kerf­inu sem sett hefur svip sinn á haustið“
Guðni Aðal­steins­son
for­stjóri Reita

Verð­bætur eru sú hækkun sem verður á höf­uð­stól verð­tryggðra lána vegna verð­bólgu. Þær eru færðar til gjalda í reikn­ings­skilum þótt þær séu ekki endi­lega greiddar á sama tíma­bili.

Leigutekjur aukast en hagnaður minnkar

Leigu­tekjur Reita námu 14,9 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og juk­ust um 11,1 pró­sent …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu