Repúblikanar lögðu í dag lokahönd á baráttu sína fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum til að afstýra þeim mikla ósigri sem þeim er spáð. Demókratar sækjast eftir meirihluta á þingi og vilja þannig í fyrsta sinn setja skorður við fordæmalausri ásókn Donalds Trump forseta í aukin völd.
Kannanir benda til þess að demókratar séu nánast öruggir um að ná meirihluta af repúblikönum í fulltrúadeildinni í kosningunum á þriðjudag. Þeir eiga einnig möguleika á að ná meirihluta í öldungadeildinni.
En eftir áratug þar sem Trump hefur hvað eftir annað farið fram úr pólitískum væntingum og tvö ár af öðru forsetatímabili hans, þar sem hann hefur virt allar venjur að vettugi, eru demókratar enn óöruggir.
„Ég er svo bjartsýnn að mér verður óglatt,“ sagði Raphael Warnock, öldungadeildarþingmaður demókrata, við CNN um stemninguna.
Óöryggið jókst í dag vegna harðvítugra deilna innan flokksins í Michigan, einu af lykilríkjum kosninganna. Þar snerist …






















































Athugasemdir