DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu

Nafnlaus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dóttur frétta­konu Sýnar hefur verið fjar­lægður af vef DV. Eig­and­inn er sagður nýta sér nafn­lausa pistla í áróð­urs­skyni til stuðn­ings rík­is­stjórn­ar­innar. Frosti Logason og Bogi Ágústs­son voru meðal þeirra sem tóku undir gagn­rýn­ina á skrifin.

DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
Skjáskot af færsl­unni Fjöl­margir for­dæmdu nafn­laus skrif DV

Nafnlaus skoð­anapist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dóttur, frétta­konu hjá Sýn, hefur verið fjar­lægður af vef DV eftir að hafa vakið hörð við­brögð. Þeir sem reyna að opna pistil­inn fá nú skila­boðin: „Þú hefur ekki leyfi til að skoða þessa síðu.“

Fjöl­miðla­fólk úr ólíkum áttum gagn­rýndi skrifin, þar á meðal Frosti Logason, rit­stjóri Nútímans og Brot­kasts­ins, Bogi Ágústs­son, fyrr­ver­andi blaða­maður og frétta­stjóri hjá RÚV, og Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, núver­andi frétta­stjóri RÚV. Fjöl­margir aðrir for­dæmdu pistil­inn í athuga­semdum á Facebook, meðal ann­ars kjörnir full­trúar.

Gagnrýnd fyrir að ganga hart eftir svörum

Í pistl­inum, sem bar yfir­skrift­ina „Orðið á göt­unni: Frétta­maður í und­ar­legum leið­angri“, var Elísabet Inga gagn­rýnd fyrir að ganga hart á eftir svörum frá Ingu Sæland, barna- og mennta­mála­ráð­herra, um afsögn Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar.

Tilefnið var að Elísabet spurði Ingu um málið þegar ráð­herr­ann yfir­gaf afmæl­is­há­tíð Mennta­skól­ans í Reykja­vík og fylgdi henni að ráð­herra­bílnum. Pistla­höf­undur túlk­aði spurn­ing­arnar sem atlögu að ráð­herr­anum: „Ber­sýni­lega átti að reyna að koma höggi á Ingu,“ sagði í pistl­inum. Þar var afsögn Guð­mundar Inga jafn­framt sögð „ekki bara sjálf­sögð heldur brýn nauð­syn“, bæði vegna heilsu hans og mála­flokks­ins sem hann fór með.

Inga hefur ekki viljað tjá sig frekar um sam­skipti sín við Guðmund Inga eftir að hann upp­lýsti um skila­boð sem hann fékk frá þáver­andi aðstoð­ar­manni sínum. Í þeim kom fram að það væri vilji Val­kyrj­anna svoköll­uðu að hann segði af sér emb­ætti eftir að hafa und­ir­geng­ist hjarta­að­gerð.

Pistla­höf­undur gerði einnig athuga­semdir við fyr­ir­sögn á við­tali Elísa­betar við Daða Má Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra og full­yrti að hún hefði enga stoð átt í við­tal­inu, heldur verið „ein­ungis til­bún­ingur frétta­manns­ins“. Daði Már hafði sjálfur kvartað undan fyr­ir­sögn­inni. 

Þá var rifjað upp við­tal Elísa­betar við Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið og því haldið fram að spurn­ingar hennar hefðu byggst á „fals­mál­flutn­ingi“.

Tengdi vinnubrögðin við pólitíska fortíð

Í pistl­inum var full­yrt að Elísa­betu gengi illa að gæta hlut­leysis og fram­ganga hennar borin saman við fram­komu Stefáns Einars Stef­áns­sonar hjá Morg­un­blað­inu. Vísað var til þess að hún hefði verið vara­for­maður Heimdallar, for­maður Vöku og í fram­boði fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík.

Pistla­höf­undur hvatti jafn­framt stjórn­endur frétta­stofu Sýnar til að „halda aðeins fastar um taumana“ og gæta þess að „einkaflipp ein­stakra frétta­manna í þágu per­sónu­legra skoð­ana og hugs­an­lega póli­tísks metn­aðar“ rýrði ekki trú­verð­ug­leika frétta­stof­unnar. Einnig var ýjað að því að meint breyt­ing á vinnu­brögðum hennar tengd­ist eig­enda­hópi Sýnar.

Segja þörf á fleiri fréttamönnum sem ganga eftir svörum

Frosti Logason, rit­stjóri Nútímans og Brot­kasts­ins, vakti athygli á pistli DV í færslu á Facebook. Hann sagði þar ekki aðeins ráð­ist að fag­mennsku Elísa­betar Ingu heldur reynt að gera gagn­rýna frétta­mennsku hennar tor­tryggi­lega með vísan til póli­tískra skoð­ana og fyrri þátt­töku í stjórn­málum.

„Það er merki­leg skil­grein­ing á hlut­leysi blaða­manna að þegar ráð­herra vill ekki svara spurn­ingu eigi frétta­mað­ur­inn ein­fald­lega að hætta að spyrja,“ skrif­aði Frosti. Elísabet ætti ekki skilið skammir fyrir að ganga hart eftir svörum. „Við þurfum einmitt fleiri blaða­menn sem gera það.“

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri RÚV, tók undir gagn­rýn­ina í athuga­semd við færsl­una: „Sammála þér Frosti“.

Bogi Ágústs­son, fyrr­ver­andi frétta­les­ari hjá RÚV, tók einnig til varna fyrir Elísa­betu og vís­aði til eigin reynslu. Fyrir hálfri öld hefði frétta­maður verið ráð­inn á frétta­stofu Sjón­varps­ins beint úr stúd­entapóli­tík­inni. Sá hefði verið í Vöku og Heimdalli en sagt skilið við flokkspóli­tík og ein­beitt sér að hlut­lægri og fag­legri blaða­mennsku með hags­muni almenn­ings að leið­ar­ljósi.

„Ég hef ekki merkt annað en Elísabet Inga hafi gert nákvæm­lega það sama og skilið póli­tíska for­tíð eftir og nálg­ast við­fangs­efni sín á fag­legum for­sendum,“ skrif­aði hann undir færslu Kolbeins Tuma Daða­sonar, rit­stjóra frétta­stofu Sýnar.

Eigandi nýtir sér nafnlausa pistla

Kolbeinn Tumi er harð­orður í garð eig­enda DV í sinni færslu og gagn­rýnir að eig­and­inn nýti sér þennan vett­vang til þess að koma skoð­unum sínum áleiðis. 

„Orðið á göt­unni á DV, sem eig­and­inn Helgi Magn­ús­son og Ólafur Arnarson [rit­stjóri Eyjunnar] skrifa undir nafn­leynd með reglu­legu milli­bili, hefur oft ansi sér­staka nálgun á málin. Þannig er það með nafn­leysið að þeir sem halda á penna geta leyft sér meira og verið rætn­aðri en þeir myndu lík­lega vera augliti til auglitis. Það er ekki ósvipað þeim sem láta vaða í athuga­semda­kerfum en myndu aldrei voga sér að segja sömu hluti við fólkið ef það yrði á vegi þeirra.“

Kolbeinn bætir svo síðar við: „Helgi telur sig eflaust vera að hjálpa rík­is­stjórn­inni með fabúler­ingum sínum. Hitt finnst mér þó lík­legra: að ráð­herrar og þing­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, jafnt sem ann­arra flokka, hristi frekar höf­uðið yfir þessum nafn­lausu skrifum. Þau dæma sig að mestu sjálf, en eru engu að síður umhugs­un­ar­verð því þar má lesa ýmis­legt.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár