Dætur lýstu ótta og uppnámi fyrir dómi og vitni brustu í grát

Vitni lýstu fyrir dómi hvernig meint umsát­ursein­elti Írisar Helgu Jón­atans­dóttur hefði haft áhrif á dag­legt líf þeirra og örygg­is­kennd. Vitni fjöl­menntu á áhorf­enda­bekk­ina eftir að hafa gefið skýrslu fyrir dóm­inum.

Dætur lýstu ótta og uppnámi fyrir dómi og vitni brustu í grát
Sak­sókn­ari lokar hurð­inni Sak­sókn­ari lokar hurð­inni við þing­fest­ingu máls­ins fyrr í sumar. Mynd: Golli

Annar dagur í rétt­ar­höldum yfir Írisi Helgu Jón­atans­dóttur ein­kennd­ist af miklum til­finn­ingum. Fjölmörg vitni brustu í grát í vitna­stúkunni. Eftir skýrslu­tökur sett­ust nær öll vitnin í sal­inn og héldu áfram að fylgj­ast með. Undir lok dags var dóm­sal­ur­inn þétt­set­inn af meintum þolendum Írisar Helgu og aðstand­endum auk blaða­manna.

Alls komu tíu ein­stak­lingar fyrir dóm í dag og gáfu skýrslur í mál­inu. Íris hefur verið ákærð fyrir umfangs­mikið umsát­ursein­elti gagn­vart níu brota­þolum. Glæp­ur­inn felst í fjöl­mörgum brotum sem eru listuð upp í 68 ákæru­liðum og ná frá raf­rænu áreiti yfir í rangar sak­ar­giftir.

Lögreglan sagði allt lygi

Fyrst mætti maður um fer­tugt í vitna­stúk­una sem var ákærður fyrir sam­verknað í brotum með Írisi Helgu. Hann ját­aði brot sín að mestu en neit­aði að hafa hvatt hana áfram eða tekið þátt í afbrotum hennar á til­teknu tíma­bili eins og hann er ákærður fyrir. Þvert á móti sagði mað­ur­inn að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Umsáturseinelti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár