Borgin stefnir á 9,4 milljarða viðsnúning en niðurskurði er ekki lokið

Reykja­vík­ur­borg áætlar 2,8 millj­arða króna rekstr­ar­af­gang á næsta ári eftir umfangs­miklar upp­sagnir og hag­ræð­ingu. Fjár­heim­ildir skóla- og frí­stunda­sviðs verða þó tveimur millj­örðum króna lægri að raun­virði og menn­ingar- og íþrótta­svið þarf að finna rúm­lega hálfan millj­arð í sparnað sem enn hefur ekki verið útfærður.

Borgin stefnir á 9,4 milljarða viðsnúning en niðurskurði er ekki lokið
Nið­ur­skurður Nýr meiri­hluti Bjargar Magn­ús­dóttur, Hildar Björns­dóttur og Einars Þor­steins­sonar hefur ráð­ist í tölu­verðan nið­ur­skurð – og honum er ekki lokið. Mynd: Golli

Reykja­vík­ur­borg gerir ráð fyrir 9,4 millj­arða króna við­snún­ingi í rekstri á næsta ári, sam­kvæmt frum­varpi að fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2027 sem Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri leggur fram í borg­ar­stjórn í dag.

Samkvæmt útkomu­spá stefnir í 6,6 millj­arða króna halla á rekstri A-hluta borg­ar­innar á þessu ári, en á næsta ári er áætl­aður 2,8 millj­arða afgangur. A-hlut­inn nær til hefð­bund­innar starf­semi borg­ar­innar, svo sem skóla og vel­ferð­ar­þjón­ustu, en ekki rekst­urs fyr­ir­tækja á borð við Orku­veitu Reykja­víkur og Félags­bú­staði.

„Við­var­andi halli hefur verið á grunn­rekstri borg­ar­innar og inn­viða­skuldin hefur vaxið gríð­ar­lega.“
Hildur Björns­dóttir
borg­ar­stjóri

Áætlaður við­snún­ingur kemur í kjöl­far umfangs­mik­illa hag­ræð­ing­ar­að­gerða sem nýr meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sóknar hefur ráð­ist í frá því hann tók við stjórn borg­ar­innar í júní.

Alls hefur verið ákveðið að fækka stöðu­gildum í mið­lægri stjórn­sýslu um 130 í þremur áföngum. Í þeim síð­asta, sem Heim­ildin greindi frá í síð­ustu viku, var …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu