Íris Helga Jónatansdóttir upplýsti í Héraðsdómi Reykjaness að hún hefði verið boðuð að minnsta kosti 40–50 sinnum í skýrslutökur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum frá því málið hófst og að málið lægi þungt á henni. Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti í garð níu einstaklinga, en málin snúa að mestu um þrjá menn. Íris Helga neitaði ítrekað fyrir aðild sína að langflestum ákæruliðum, utan símaskilaboða sem hún sendi á einn þolandann. Hún bar oftast við minnisleysi. Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjaness.
Grunar brotaþola um að dreifa miðum
Íris Helga er ákærð fyrir að hafa að mestu hrellt þrjá menn, en einnig fyrir rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir, ærumeiðandi aðdróttanir og barnaverndarlagabrot. Brotin beinast alls gegn níu brotaþolum, fullorðnum einstaklingum og börnum þeirra. Ákæruskjalið taldi 17 blaðsíður og voru ákæruliðirnir 68 talsins. Allir ákæruliðirnir í morgun sneru aðeins að einu pari.






















































Athugasemdir