Rýmkar umhverf­is­reglur Donald Trump hyggst kynna breyt­ingar á reglum um met­an­losun olíu- og gas­fram­leið­enda. Meðal þeirra er til­laga um að leggja niður áætlun um til­kynn­ingar um stóran leka. Mynd: AFP

Trump stóreykur losun metans

Banda­ríkja­for­seti losar um reglur sem eiga að hindra að metan ber­ist í and­rúms­loftið við olíu­vinnslu. Efnið veldur um þriðj­ungi hlýn­unar frá því fyrir iðn­bylt­ingu.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hyggst í dag kynna umfangs­mikla aflétt­ingu reglna sem tak­marka losun olíu- og gas­fram­leið­enda á met­ani, gróð­ur­húsa­loft­teg­und sem veldur mik­illi hlýnun.

Trump mun kynna breyt­ing­arnar á stuðn­ings­fundi fyrir Ken Paxton, rík­is­sak­sókn­ara Texas, sem sæk­ist eftir sæti í öld­unga­deild­inni, að sögn emb­ætt­is­manns í Hvíta hús­inu. Texas er langstærsta fram­leiðslu­ríki jarð­efna­elds­neytis í Banda­ríkj­unum.

Umhverf­is­vernd­ar­stofnun Banda­ríkj­anna (EPA) sagði í yfir­lýs­ingu fyrr í þessum mán­uði að afnám reglna sem Joe Biden, for­veri Trumps í for­seta­emb­ætti, setti myndi spara 45 millj­arða doll­ara, eða um 5.500 millj­arða króna. Stofn­unin sund­ur­lið­aði ekki þá upp­hæð nánar.

„Banda­ríkja­menn verða að hafa efni á að hita heim­ili sín á vet­urna og fylla á bíl­inn til að kom­ast í vinn­una. Það geta þeir ekki þegar þeir sem fram­leiða ork­una þurfa að bera óþarfa byrðar,“ sagði Lee Zeldin, for­stjóri Umhverf­is­vernd­ar­stofn­un­ar­innar.

Metan er meg­in­uppi­staða jarð­gass og á, næst á eftir koltví­sýr­ingi, stærstan þátt í hlýnun jarðar. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár