Sautján missa vinnuna hjá SORPU

SORPA hefur sagt upp tíu starfs­mönnum og ákveðið að end­ur­nýja ekki tíma­bundna ráðn­ing­ar­samn­inga við sjö til við­bótar. Starfs­fólki fækkar því um sjö pró­sent. Aðgerð­irnar koma í kjöl­far umfangs­mik­illa upp­sagna hjá Reykja­vík­ur­borg í gær og á sama tíma og atvinnu­leysi hefur auk­ist veru­lega á milli ára.

Sautján missa vinnuna hjá SORPU
Nið­ur­skurður SORPA áætlar að hag­ræð­ing­ar­að­gerð­irnar spari rúm­lega 200 millj­ónir króna á ári. Mynd: Reykjavíkurborg

SORPA hefur sagt upp tíu starfs­mönnum í hag­ræð­ing­ar­skyni. Auk þess verða tíma­bundnir ráðn­ing­ar­samn­ingar sjö starfs­manna ekki end­ur­nýj­aðir. Alls fækkar því starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins um sautján, eða sjö pró­sent af heild­ar­starfs­manna­fjölda.

Samkvæmt til­kynn­ingu SORPU er áætlað að aðgerð­irnar skili rúm­lega 200 millj­óna króna sparn­aði á ári. Þær koma í fram­haldi af sam­þykkt stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins um að leita leiða til hag­ræð­ingar, meðal ann­ars til að halda aftur af gjald­skrár­hækk­unum og tryggja að þær verði undir 2,5 pró­sentum.

Upp­sagn­irnar koma aðeins degi eftir að Reykja­vík­ur­borg til­kynnti um umfangs­miklar upp­sagnir og nið­ur­skurð í mið­lægri stjórn­sýslu borg­ar­innar. Aðgerð­irnar eru ótengdar, þó félagið sé í sam­eig­in­legri eigu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Eins og Heim­ildin greindi frá í gær sam­þykkti borg­ar­stjórn að fækka stöðu­gildum um 74 á fimm sviðum og tveimur skrif­stofum borg­ar­innar. Fimmtíu starfs­mönnum var sagt upp, en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár