Donald Trump Bandaríkjaforseti svaraði Barack Obama í dag eftir að fyrrverandi forsetinn sagði í gamni að Hvíta húsið hjá eftirmanni sínum liti út eins og veitingastaður í Cheesecake Factory-keðjunni rekinn af Saddam Hussein.
„Að þú skulir segja að þetta sé Cheesecake Factory sýnir bara hvers vegna þú varst lélegur forseti,“ sagði Trump í þriggja mínútna reiðilestri þegar hann var spurður um ummæli Obama um helgina.
„Menn eins og Obama gengju fram hjá aðaldyrunum og sæju brotið múrverkið ... Hann tekur ekki eftir óhreinindum og sóðaskap þar sem veggirnir hafa ekki verið þrifnir árum saman,“ sagði Trump við fréttamenn á leið á nýjasta kosningafund sinn vegna þingkosninganna á miðju kjörtímabili.
Cheesecake Factory er vinsæl veitingahúsakeðja sem er þekkt fyrir langan matseðil með ríkulegum réttum og fjölbreytilega innanhússhönnun.
Obama gagnrýndi „ringulreið …























































Athugasemdir