Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Hrjóstugt land Roll­urnar mínar labba fram hjá þessum bletti og það nátt­úru­lega segir mikið ef þær gera það, því þær fara hvert sem þær vilja,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son bóndi. Mynd: Golli

Orku­málin hafa verið tíð­rædd und­an­farið en áður óþekktur orku­kostur á Íslandi, vind­orka, virð­ist nú kom­inn til að vera. Hafnar eru fram­kvæmdir vegna Vað­öldu­vers, vind­orku­garðs á vegum Lands­virkj­unar, vind­mælimastur hefur risið á Mos­fells­heiði þar sem Orku­veitan stefnir á vind­orku­garð, og hug­myndir eru uppi um tugi fleiri verk­efna af svip­uðu tagi. Í Silfrinu í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna árið 2024 sagði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, þáver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að ein ástæða þess að rík­is­stjórnin hefði sprungið væri ágrein­ingur í orku­málum. „Það eru ekki allir flokkar á því að vind­orka sé góð hug­mynd,“ sagði hún.  

Í orku­spá Íslands fyrir árin 2025 til 2050, sem kynnt var í des­em­ber síð­ast­liðnum, er í grunn­spá gert ráð fyrir hóf­legum vexti í umsvifum og núver­andi þróun á orku­skiptum. Í háspá er gert ráð fyrir auknum umsvifum í stór­notkun, til dæmis vexti í mat­væla­iðn­aði, gagna­vers­iðn­aði og raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu, og hrað­ari orku­skiptum. 

Garps­dalurFyr­ir­huguð fram­kvæmd á Garps­dals­fjalli …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár