Nátt­úru­upp­lifun Páll Jakob Líndal segir tengsl fólks við nátt­úr­una geta haft áhrif á hvernig það upp­lifir lands­lag og breyt­ingar á umhverfi sínu. Mynd: Shutterstock

Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“

Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði, segir feg­urð­ar­skyn fólks byggja á gild­is­mati þess og að því sé ekki auð­velt að breyta. Við opnun Vað­öldu­vers sagði Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra að við þyrftum að „laga feg­urð­ar­skynið okkar að orku­skipta­bylt­ing­unni“.

„Þó að við séum fljót að leggja mat á umhverfi okkar, þá þýðir það ekki að þetta sé yfir­borðs­legt og ein­hver léttúð. Þar að baki geta verið ofboðs­lega djúpar ástæður,“ segir Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði. Heim­ildin ræddi við hann um feg­urð­ar­skyn fólks gagn­vart umhverfi og nátt­úru.

Í sept­em­ber var vind­orku­ver við Vaðöldu opnað við hátíð­lega athöfn þar sem Jóhann Páll Jóhanns­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra ávarp­aði meðal ann­ars gesti. Í ávarp­inu sagði ráð­herr­ann að honum leidd­ist „trumpísk“ orð­ræða and­stæð­inga vind­orku­vera og benti á að vind­myllur væru tákn­mynd orku­skipt­anna. „Við þurfum líka bara svo­lítið að læra að meta þetta og laga feg­urð­ar­skynið okkar að orku­skipta­bylt­ing­unni,“ sagði Jóhann Páll um málið.

Páll segir að feg­urð­ar­skyn sé flókið fyr­ir­bæri og sem stendur skilji fræðin það ekki til fulls. „Þetta er upp­lifun og ef við horfum á það, þá er það sam­sett fyr­ir­bæri hvernig við upp­lifum umhverfi okkar. Það getur …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

23 mín.
VettvangurVindorka á Íslandi

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.

15 mín. lestur

SkýringVindorka á Íslandi

Risar á ferð: Flösku­hálsar kalla á breyt­ingar á vegum

80 metra langir vind­myllu­spaðar eru lengstu íhlut­irnir sem munu fara um íslenska vega­kerfið ef af bygg­ingu vind­orku­vera verður hér á landi. Þessir for­dæma­lausu þunga­flutn­ingar kalla á styrk­ingar á brúm og vegum, breyt­ingar á vega­mótum og alls konar til­fær­ingar aðrar. Flytja yrði inn sér­staka flutn­inga­bíla til verks­ins og loka vegum fyrir annarri umferð enda ekki dag­legt brauð að aka með fyr­ir­bæri á pari við hæð Hall­gríms­kirkju­turns um þjóð­vegi lands­ins.

Mest lesið undanfarið ár