Björn Brynj­úlfur Björns­son fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands Mynd: Art Bicnick

Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök

Fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands fer í gegnum umdeildar grein­ingar og við­brögð við þeim. Þá er einnig rætt um lær­dóm hruns­ins. „Mér finnst menn hafa tekið á sig of mikla sök“

Fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs Íslands, Birni Brynj­úlfi Björns­syni, finnst Við­skipta­ráð Íslands hafa tekið á sig of mikla sök eftir hrunið. Hann telur stétt­ar­fé­lög hafa náð mark­miðum sínum og séu nú að seil­ast of mikið inn í umsvif hins opin­bera auk þess sem hann telur fjár­hags­legan ávinn­ing af olíu­leit mögu­lega veiga­meiri en ávinn­ing af grænum áherslum; það þurfi í það minnsta að finna jafn­vægi í þeim málum, að hans mati.

Við­skipta­ráð er umdeild hug­veita sem hefur birt margs konar grein­ingar sem hafa valdið tölu­verðri úlfúð í sam­fé­lag­inu. Leiðtogi stétt­ar­fé­lags hefur skrifað á opin­berum vett­vangi að Við­skipta­ráð sé haldið þrá­hyggju þegar kemur að kjörum og rétt­indum opin­berra starfs­manna, kenn­arar saka þá um að kunna ekki að reikna og umhverf­is­verk­fræð­ingur bendir á að grein­ing um sorp­hirðu hafi verið vill­andi og inni­haldið rangar tölur. Björn Brynj­úlfur stendur við allar grein­ingar Við­skipta­ráðs og telur gagn­rýn­ina oft­ast ómak­lega.

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar sett­ist niður með Birni og fór í gegnum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    Viðskiptaráð er gríðarlega ofmetið fyrirbæri og ætti að halda sér sem mest saman. Ekkert, nákvæmlega ekkert af því sem Björn heldur fram í þessu viðtali stenst.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Í eignamesta hluta hverrar þjóðar er því gjarnan haldið fram að kapítalisminn sé ekki pólitík, allt sem andmælir honum eru stjórnmál, og ekki góð. Það að hafa alltaf rétt fyrir sér þar til að eitthvað fer úrskeiðis og kenna svo slæmu eftirliti um sem maður er alfarið á móti er svolítið tæpt. Verslunarráð er gott til síns brúks þegar maður gerir sér grein fyrir því hverra það er.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Mér kemur fyrst í hug" Powell memorandum" og hvert sú uppskrift hefur leitt Bandaríkin.
    Að hafa það nánast sem starfslýsingu að leysa upp og skemma límið sem heldur samfélagi saman til ágóða fyrir lítinn hóp, er svolítið sérstakur vettvangur.
    Það er fátt jafn gróðavænlegt til skamms tíma eins og að skapa samfélag þar sem allir líta á náungann sem ógn og keppinaut en ekki bara Jón eða Gunnu í næsta húsi.
    Að kalla Viðskiptaráð " hugveitu" er ofboðslega fallegt orð fyrir áróðurs fyrirtæki sem boðar fagnaðar erindi. En þeir sem starfa þarna virðast trúa þessu fagmaðar erindi blindandi, sem í mínum huga bendir til að við séum að horfa á " Cult".
    Það er nóg fyrir mig að horfa á USA til að átta mig á hvert eitruð einstaklinghyggja og takmarkalaus trú á skilvirkni og gróða leiðir.
    Langar okkur að búa í landi þar sem allir öfundast og hata hvern annan eins og þar?
    Viðskiptaráð er bara eins og Vísindakirkjan, Cult sem þjónar pínu litlum hóp á toppnum.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár