Vindorkugarðar áformaðir víða um land

Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um vind­orku­kosti víða um land og eru fjórtán þeirra í skipu­lags­gátt­inni. Heim­ildin fór yfir stöðu vind­orkunnar á Íslandi.

Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vað­öldu­ver Vind­myllur hafa nú risið. Mynd: Landsvirkjun
Upplestur fyrir áskrifendur 14:38 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Þann 15. sept­em­ber voru fjórar vind­myllur gang­settar í fyrsta vind­orku­veri Íslands, Vað­öldu­veri. Lopa­peysu­prýddur Karlakór Hreppa­manna, sem skipa meðal ann­ars Sigurð Inga Jóhanns­son, alþing­is­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Íslands, flutti íslensk dæg­ur­lög við opn­un­ar­at­höfn í haust­sól­inni. „Í dag erum við að opna nýjan kafla í íslenskri orku­sögu,“ sagði Jóhann Páll Jóhanns­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, í erindi áður en Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra gaf starfs­fólki Lands­virkj­unar merkið: „Ræsið vél­arnar“. Blíð­skap­ar­veður við verið varð þó til þess að vind­ur­inn lét lítið sjá sig og vind­myll­urnar fóru því hægt af stað.  

Vað­öldu­ver er stað­sett í Búr­fellslundi við Vaðöldu í Rangár­þingi ytra og er Lands­virkjun eig­andi þess. Stefnt er á að 28 vind­myllur verði starf­ræktar í ver­inu fyrir árs­lok 2027.

Vað­öldu­ver er ekki eina vind­orku­verið sem fyr­ir­hugað er að rísi á Íslandi. Í skipu­lags­gátt er að finna 14 verk­efni tengd vind­orku sem níu fyr­ir­tæki standa að. Tvö mál­anna hafa farið í gegnum …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár