Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump

„Nú er tím­inn til að auka stuðn­ing okkar og herða þrýst­ing­inn“ segir António Costa, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins.

Leiðtogar Evrópu fylkja sér að baki Zelensky í átökum við Trump
Fagn­að­ar­fundir Vel fór á með Emmanuel Macron og Volodymír Zelensky nú í vor. Mynd: AFP

Leið­togar Evr­ópu­ríkja lýstu í dag yfir stuðn­ingi við Volodimír Zelensky Úkra­ínu­for­seta eftir að sam­skipti hans við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta versnuðu til muna. Áhyggjur fara vax­andi af því að Trump legg­ist sífellt meira á sveif með Rússum á sama tíma og Úkraína glímir við harðar árásir og versn­andi fjár­hags­stöðu.

Sam­skipti stjórn­valda í Kænu­garði og Washington hafa versnað frá því í síð­ustu viku þegar Trump slak­aði á refsi­að­gerðum gegn Rússum gegn því að rúss­nesk stjórn­völd hleyptu miklu magni af dísilolíu á heims­markað.

Zelensky reitti Trump enn frekar til reiði með því að fyr­ir­skipa úkra­ínska hernum að hefja á ný árásir á rúss­neskar olíu­hreins­un­ar­stöðvar, þvert á kröfur banda­rískra stjórn­valda.

Reiðin í Úkraínu hefur jafn­framt auk­ist vegna trufl­ana á mik­il­vægu gervi­hnatta­kerfi sem Banda­ríkin hafa útvegað land­inu. Trufl­an­irnar hafa tor­veldað úkra­ínska hernum að verj­ast hörðum loft­árásum Rússa nú þegar erf­iðir vetr­ar­mán­uðir eru fram undan.

„Nú er ekki rétti tím­inn til …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Nýlega eyðilögðu úkrainumenn stórt rússneskt gagnaver - og commentar í samfélagsmiðlum þar sem Putin og andlýðræðið voru dásömuð fækkuðu um 80% á heimsvísu. Telst útskýring vera sú að fjöldi rússneskra bots hafi verið lamaður.
    1
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Sá er eldurinn heitastur er á sjálfum brennur. Leiðtogar Evrópu sjá það í hendi sinni að ef Úkraína fellur í hendur Rússum, þá eru þeir næstir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár