Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, gagnrýnir forsendur fyrirhugaðra breytinga á Loftbrúnni og kallar eftir mati á árangri verkefnisins áður en fyrirkomulagi þess verði breytt. Aðgreina þurfi ákvörðun um umfang stuðningsins frá spurningunni um hvernig honum sé best varið.
„Það kemur sér sérstaklega illa nú þegar til stendur að gera róttækar breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar á grundvelli hálfgerðra ágiskana um kosti og galla núverandi fyrirkomulags,“ skrifar Þóroddur í pistli á vefsíðu sinni, Landsbyggðalatté.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti á föstudag breytingu sem átti að taka gildi um áramót. Í stað þess að greiða niður 40 prósent fargjalds á hverjum fluglegg yrði stuðningurinn föst fjárhæð, 7.000 krónur. Loftbrúin veitir íbúum tiltekinna landsvæða rétt á sex niðurgreiddum flugleggjum innanlands á ári.
Breytingin hefur mælst illa fyrir á landsbyggðinni og sætt harðri gagnrýni íbúa og sveitarstjórnarfólks. Efasemdir eru einnig bæði innan þingflokks Viðreisnar og þingflokks Flokks fólksins.


















































Athugasemdir