Leiðtogar víða um heim óskuðu Luiz Inacio Lula da Silva, vinstrisinnuðum forseta Brasilíu, til hamingju í gær eftir að honum tókst að tryggja sér endurkjör þrátt fyrir að hafa áður átt undir högg að sækja.
Leiðtogar til vinstri og hægri viðurkenndu sigur Lula, þótt mótframbjóðandi hans, Flavio Bolsonaro, neitaði að sætta sig við ósigurinn.
Lula hlaut 51,8 prósent atkvæða en Bolsonaro 48,2 prósent.
Claudia Sheinbaum, vinstrisinnaður forseti Mexíkó, fagnaði sigri Lula í færslu á X og sagði: „Lengi lifi lýðræðið, brasilíska þjóðin sigraði.“
Miguel Diaz-Canel, forseti Kúbu, óskaði Lula til hamingju með „sögulegan sigur sem tryggir áframhaldandi vegferð í þágu friðar, fullveldis og félagslegs réttlætis“.
Cristina Kirchner, fyrrverandi forseti Argentínu, sem situr nú í stofufangelsi vegna spillingar, sagði á X að Lula hefði „kunnað að vekja hjá samlöndum sínum þær tilfinningar og þann skilning sem þurfti til sigurs“.
Yamandu Orsi, forseti Úrúgvæ, …


























































Athugasemdir