„Vinnueftirlitið skilaði eftirlitsskýrslu fyrr á árinu þar sem gerðar voru athugasemdir við stólana í borgarstjórnarsalnum,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins og borgarstjóri.
Hún leggst þó gegn því að stólarnir verði keyptir, en oddviti Samfylkingingarinnar, Pétur H. Marteinsson, gerði athugasemd við forgangsröðun meirihlutans vegna viðauka í fjárfestingaáætlun sem rædd var á fundi borgarstjórnar á þriðjudaginn. Þar benti Pétur á að gert væri ráð fyrir 50 milljónum til kaupa á stólum og LED-skjá í sal borgarstjórnar.
Tillagan sem gerir ráð fyrir 50 milljóna króna fjárframlagi til stólakaupanna var þó lögð fram af Hildi sjálfri í borgarráði, samkvæmt fundargerð ráðsins síðan 17. september síðastliðinn.
Ekki góðir til langrar fundarsetu
„Að mati Vinnueftirlitsins þóttu þeir ekki nægilega góðir til langrar fundarsetu,“ segir Hildur um stólana en bætir við: „Mér hafa hins vegar ekki borist neinar kvartanir frá borgarfulltrúum undan stólunum, ég hef sjálf …


















































Athugasemdir