Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt því fram í dag að kosningarnar í Brasilíu hefðu verið „sviknar“. Bandamaður hans, Flavio Bolsonaro, krafðist þess að kosningarnar, sem vinstrimaðurinn Luiz Inacio Lula da Silva forseti vann, yrðu ógiltar.
Lula, sem verður 81 árs á morgun, náði að snúa stöðunni við eftir að hafa tapað fyrir Bolsonaro í fyrri umferð. Ósigurinn varð til þess að vinstrimenn beittu sér af krafti á götum úti og á samfélagsmiðlum og tryggðu Lula fjórða kjörtímabilið.
Lula fékk um 4,4 milljónum fleiri atkvæði en keppinautur hans.
Hægrimaðurinn Flavio Bolsonaro, 45 ára öldungadeildarþingmaður og sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta af ysta hægri vængnum, sagði brögð í tafli eftir að kjörstaðir voru látnir vera opnir tveimur klukkustundum lengur um allt land. Það var gert að beiðni Lula vegna samgönguvandræða í sumum borgum.
Flavio …


















































Athugasemdir