Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði að palestínsku heimastjórninni verði „komið verulega á óvart“ eftir að hann fyrirskipaði umfangsmikla hernaðaraðgerð vegna árásar á hermenn á Vesturbakkanum.
Netanjahú vildi ekki svara því beint hvort hann hygðist leggja palestínsku heimastjórnina niður þegar hann var spurður, nokkrum dögum fyrir kosningar. Hann sagðist þó aðhyllast „blekkingar og óvæntar aðgerðir“.
„Við höfum umbreytt Mið-Austurlöndum. Ég sagði að við myndum breyta hlutunum og það höfum við gert,“ sagði Netanjahú í viðtali við i24News sem tekið var í gærkvöld.
„Palestínsku heimastjórnarinnar bíða líka mjög mikil óvænt tíðindi.“
Netanjahú lofaði í gær umfangsmiklum hernaðaraðgerðum eftir að palestínskir vígamenn drápu tvo ísraelska hermenn nærri Hebron á hernumda Vesturbakkanum.
Eftir árásina hvatti einn bandamanna hans á ysta hægri vængnum Ísrael til að fella palestínsku heimastjórnina. Hún fer með takmarkaða sjálfstjórn á hlutum Vesturbakkans í samvinnu við Ísrael samkvæmt friðarsamningum frá tíunda áratug síðustu aldar.
…

























































Athugasemdir