Ísraelar hertaka skóla Sameinuðu þjóðanna

Skóli flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem veitir 340 Palest­ínu­mönnum starfs­menntun á hverju ári, hefur verið yfir­tek­inn af Ísrael í því skyni að „rýma hann“. Bygg­ingar SÞ eiga að njóta frið­helgi.

Áhlaup á skóla
Áhlaup á skóla Ísra­els­her hand­tekur palest­ínskan mann í áhlaupi á starfs­mennta­skóla UNRWA, sem er stað­settur á milli Kafr Aqab-hverf­is­ins og Qalandia-flótta­manna­búð­anna, sunnan við borg­ina Ramallah á Vest­ur­bakk­anum, í dag.Ísra­elska lög­reglan gerði áhlaup á starfs­mennta­skóla sem rek­inn er af stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir palest­ínska flótta­menn í inn­lim­uðu aust­ur­hluta Jer­úsalem, en ráð­herra úr röðum öfga­hægri­manna sagði aðgerð­ina miða að því að „fjar­lægja“ stofn­un­ina af svæð­inu. Aðgerðin fylgir í kjöl­far ítrek­aðra aðvar­ana frá UNRWA um að ísra­elsk yfir­völd ógn­uðu mennta­skóla stofn­un­ar­innar. Mynd: AFP

Ísra­els­her tók yfir starfs­mennta­skóla á vegum Palest­ínu­flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNRWA) í úthverfi í aust­ur­hluta Jer­úsalem í dag, en það er nýjasta aðgerðin sem bein­ist að stofn­un­inni sem á undir högg að sækja.

Árásin var for­dæmd af Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, og kom í kjöl­far við­var­ana frá UNRWA um að ísra­elsk yfir­völd ógn­uðu Qalandia-mennta­skól­anum, sem er stað­settur á milli Kafr Aqab-hverf­is­ins í aust­ur­hluta Jer­úsalem og Qalandia-flótta­manna­búð­anna.

Skólinn var stofn­aður árið 1952 og veitir um 340 Palest­ínu­mönnum frá hernumda Vest­ur­bakk­anum starfs­menntun á hverju ári, að sögn UNRWA.

„Í sam­ræmi við fyr­ir­mæli mín og í kjöl­far lag­anna sem við sam­þykktum, hófst í dag rým­ing á lóð UNRWA í Kafr Aqab í Jer­úsalem,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu Benja­mins Net­anyahu for­sæt­is­ráð­herra.

„Ísra­els­ríki mun ekki leyfa stofnun, þar sem starfs­menn tóku þátt í hryðju­verkum og fjöldamorð­unum 7. októ­ber, að starfa innan land­svæðis síns og mun beita öllum til­tækum ráðum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útþensla Ísraels

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár