Mynd: Golli

Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna

Ágúst Líndal Ágústsson varð máttlaus í hálfu andlitinu eftir meðferð gegn fjórða stigs krabba­meini í heila. Hann lagðist í djúpt þunglyndi en er þakklátur fyrir að hafa ekki gefist upp.

„Núna langar mig að sjá hluti og upplifa,“ segir Ágúst Líndal Ágústsson og brosir út í annað munnvikið. Hann var 19 ára þegar hann greindist með heilaæxli og þrátt fyrir vel heppnaða meðferð leit um tíma út fyrir að líf hans væri engu að síður komið á endastöð.

Ágúst býr núna með föður sínum og alnafna í huggulegri íbúð í miðborginni. Á veggjunum eru plaköt af tvífara Ágústs eldri, James Dean, kvikmynda­stjörnunni goðsagna­kenndu sem lést fyrir aldur fram. Á borði í stofunni, innan um minja­gripi frá knattspyrnu­félaginu Chelsea og ljós­myndir af feðgunum á leik á Stamford Bridge í vor, stendur verðlauna­gripur sem vinir Ágústs færðu honum eftir að hann greindist. Á hann er letrað: „Ágúst Líndal – Kóngurinn“.

Reece JamesLeik­maður Chelsea kvitt­aði undir kveðju frá Chelsea til Ágústs á meðan hann gekk í gegnum veik­indin.

Þar er einnig að finna bréf dagsett í …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deildar­stjóri á Grensás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskorana eftir útskrift af deildinni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heimili eða bíði í lengri tíma eftir þjónustu. Heila­skaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nærsam­fé­lagið en gefandi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppnaða endur­hæfingu.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár